Kirkjulygasaga.

bókinÞetta er bókin sem breytti öllu þegar hún reif af mér augnlokin og ég sá loksins skýrt að allt var lygi. Ég var á þriðja ári í klerksnámi og langaði til að vita hvað hefði verið á seyði fyrstu 300 árin í kristni því kennd kirkjusaga byrjar um 325. Fyrir þann tíma var allt í þoku og lítið um kennt. Fór til prófessorsins í kirkjusögu og spurði hann hvort eitthvað væri til um þetta. Hann benti mér á þessa bók. Hún var gefin út rétt fyrir seinni heimsstyrjöld. Þegar ég fór á bókasafnið reyndist það geitarhús. Bókmeyjar bókhlöðu þjóðar minnar sögðust því brosandi og með blik í brillum myndu faxa fyrir mig fyrirspurnir til útlanda og freista alls í þeim efnum að finna ritið lifandi eða dautt. Eftir 8 mánuði, ítrekaðar erindisleysur um allan heim og einstaka þrautseigju og harðfylgi bókavarðanna blíðu fannst loks slitið eintak í fjallaþorpi í Kanada á ensku sem barst fyrir kraft alþjóðlegs millisafnalánasamnings vitsmunavera kalið og snjáð í hendur mér og mátti ég hafa í hálfan mánuð. Að lesa þessa bók var kristilegt kjaftshögg á hverri síðu og rothögg á sumum, Lét ljósrita dýrið til eignar og skilaði síðan opinberuninni germönsku til síns heima. Eftir lesturinn skildi ég hvers vegna lærifaðir minn, presturinn, benti mér á hana. Hann vissi að hún var týnd og tröllum gefin en taldi sig með þessu trixi geta leitt mig afvega út á endalausan mel og haldið kennaraheiðri um leið og hann dræpi bölvaða forvitni besta nemanda síns. Hún er nefnilega skrifuð af þýskara og enginn vildi gefa hana út á ensku eftir stríð nema einn sérvitur útgefandi í amerískum afdal og í örfáum eintökum sem fór síðan á hausinn. Og hann vissi þetta því hann tók doktorinn kirkjulygasögu í Þýskalandi. Síðan var henni kerfisbundið stolið af bókasöfnum heimsins af hans líkum og eytt til að vernda fjárplógsstarfsemi kirkju hans og það vissi hann líka. Höfundi var síðan eytt guðfræðilega í sýru akademískrar þöggunar. En ekki vissi þó klerktitturinn um eintakið lúna sem slapp til elgslands né þekkti óendanlega þrjósku mína þegar kemur að því að fá botn í eitthvað. Heimildalistinn reyndist heiðingjanámur Salómons í öðru veldi og sumarið fór í að kafa á bókaslóðum þar sem enginn annar var á veiðum er augað sá. Ég bankaði upp hjá prófessornum um haustið í pásu á skrifstofu hans til að þakka honum fyrir ábendinguna og hann varð undrandi þegar hann heyrði að ég hefði fundið bókina og bauð mér sæti. Á hann kom áhyggjuhrukka þegar ég spurði hann hvers vegna okkur hefði ekki verið kennt í kirkjusögunni á fyrsta og öðru ári að árið 250 eftir krist hefðu verið 80 mismunandi kirkjudeildir sem lifðu í sátt hver við aðra eins og nú og rétttrúnaður og villutrú þekktist ekki. Og að árið 395 var bara ein eftir. Rómversk Katólsk. Og að Biskupar, prestar og stríðsmunkar hennar ásamt sturluðum fylgjendum sínum höfðu drepið alla hina með því að brenna þá á báli bóka sinna. Nú var komið flóttalúkk á minn svo ég skaut á hann spurningavélbyssugusum með dum dum kúlum úr bókum heimildalistans og ímyndaði mér að ég væri Hannes Hólmsteinn í kappræðum viv kommúnista. Honum varð helvígðum ekki um sel og hann stundi upp "Djöfull ertu búinn að lesa drengur". "Erum við ekki hér til þess?" svaraði ég og sleppti þremur tundurskeytum lausum í einu neðanþindar um leið og ég kastaði á hann djúpsprengju. Engu gat hann svarað enda kökkur í hálsi og svitaperlur í mótorkrossi niður hrukkað ennið og allt í einu var hann orðinn of seinn eitthvert, stóð upp snarlega, leiddi mig að dyrunum með alstol í augum og örvæntingarsvip á meðan hann hristi úfinn kollinn og hóstaði í skegg sér kálfkjökrandi "Ég hefði aldrei átt að benda þér á þessa bók". Um jólin voru dagar mínir taldir í hindurvitnadeild hí. Þetta var fyrir 25 árum en nú er hægt að fá þetta öndvegisrit upprisið á amazon.


Rafsegulguð.

koren

Þetta er Koren hjálmurinn. Hann er nefndur eftir Stanley Koren uppfinningamanni sem bjó hann til. Þetta er venjulegur mótorhjólahjálmur með óvenjulegum viðbótum. Á honum eru málmskaut sem geta sent rafsegulbylgjur á ákveðna staði í heila þess sem ber hann. Tækið var smíðað í samvinnu við Dr. Michael Persinger við Stanford háskóla. Persinger er heila og taugasérfræðingur og var fyrstur manna til að rannsaka með hátækni hvað er á seyði í heila þeirra manna sem trúa á guð enda hundheiðinn vísindamaður sjálfur. Til þess notaði hann segulómunartæki og síðar jáeindaskanna og leiddu þær rannsóknir til smíði hjálmsins og upphafs svonefndrar taugaguðfræði. Persinger hafði ómað og skannað alls konar trúmenn og bað þá biðja bænir eða hugleiða eða bara gera það sem kæmi þeim í samband við þeirra æðri mátt meðan hann skoðaði inn í hausana á þeim. Sama heilastöðin sýndi mesta virkni hjá þeim öllum er þeir þóttust komnir í samband við almætti sitt og gilti einu hverrar trúar þeir voru og hvaða aðferð þeir notuðu. Sú heilastöð er í hægra gagnaugablaði. Taugafræðingar vita að lágspennu segulsvið er til staðar í heilanum og Því datt vini vorum í hug hvort hægt væri að örva þennan stað með rafstuði og framkalla sömu hughrif vélrænt. Þeir smíðuðu því hjálminn og fóru að stuða heilabörk og frumur forvitinna nemenda sinna. Alvöru árangri náðu þeir fyrst er félaga þeirra Dr Alex Thomas tókst að reikna út réttan styrk og tíðni rafsegulbylgja þeirra er skotið var á heimili guðs í gagnaugablaðinu hægra. Var rafpúlsinn rétti nefndur eftir honum og er kallaður Thomas Pulse af taugaguðfræðingum. Hann framkallaði tilfinningu meðal allra sem prófaðir voru um að ósýnileg ofurvera væri mætt á svæðið. Sem kom ekki á óvart því að heilastöð þessi er ekki bara hús guðs heldur höfuðból og miðstöð flogaveikinnar sem veldur á köflum svæsnum ofskynjunum. Var hún kölluð Maladia Sacra á miðöldum af pípukragaflathausum krists sem þýðir heilaga veikin. Ef styrkurinn var aukinn heyrðu tilraunadýr klukknaspil og síðan englaraddir af himnum ofan. Á fullum styrk upplifðu þau innilegan samruna eigin sálar við alheiminn, sannfærðust um eilíft líf og heyrðu um leið djúpa bassarödd sem sagði "Þú ert mitt elskaða barn sem ég hefi velþóknun á". Tilraunir þessar fréttust fljótt um skólann og brátt stóðu trúlausir raungreinakennarar í biðröð eftir því að fá að prófa Guðshjálminn. Eftir að Richard Dawkins liffræðingur og höfundur bókarinnar Ranghugmyndin Guð hafði upplifað það sama í hjálminum og kaþólskur klerkur með kórdreng í skrúðshúsi eftir messu lék enginn vafi lengur á því hvað trúartilfinningar og trúarupplifanir eru. Þær eru fyrsta stig flogaveiki og er bornar voru saman vitranir og sýnir kristinna sjáenda og helgra manna í gegn um aldirnar við seinni tíma sjúkraskýrslur geðlækna um ofskynjanir fólks í stjarfaflogi var engan mun að finna.


Hugarburður til sölu.

Pípukragaflathausar Þjóðkirkjunnar kenna að 2000 ára gamall kosmískur og ósýnilegur og almáttugur sjálfsmorðsterroristauppvakningur og afturganga frá palestínu muni tryggja mönnum endalaust sæludauðalíf ef þeir éta reglubundið táknrænt hveitihræ hans og drekka úr honum þykistu áfengisblóð um leið og þeir senda draugnum hugskeyti um að þeir gefi sig honum á vald sem andlegir þrælar svo hann geti fjarlægt illt ógnarafl úr sál þeirra sem er til staðar í öllum mönnum vegna þess að rifbeinskona trúði eiturslöngu er kvað í lagi að éta ávöxt af bannhelgu galdratré sem hún og gerði illu heilli við upphaf tímans og ef þú kaupir ekki þessa steinaldarsteypu muntu steiktur á teini í hvítlogandi eldpytti og klipinn með rauðglóandi töngum, barinn blár og marinn af árum að eilífu lifandi dauður neðanjarðar í pyntingahöll fyrrverandi besta vinar föður hans sem er reyndar hann sjálfur því hann sarð móður sína bernska á bak við eiginnmann hennar áður en hann var til og gat þannig sjálfan sig svo hann gæti framið sjálfsmorð og orðið sombí. Sem er ástæðan fyrir því klerklarfur einn vesæll sem fyrrum var þekktur að bersögli og rökföstu gríni grípur nú, nývígður og æviráðinn á ofurlaunum til andlegs þrældóms í guðsríki íslenska ríkisins auk ríflegra eftirlauna, til þeirrar haugalygi sem hann lærði að kokka með kaldabrasi við geðfroðudeild HÍ og reynir að svo réttlæta með skrökvellingnum sitt gagnslausa galdrakukl og lygalifibrauð steingert í dagblöðum skynjandi í örvæntingu komandi endaskeið síns úrelta bronsaldarátrúnaðar í heimi gagnrýninnar rökhugsunar hinnar vísindalegu aðferðar enda einna tunguliprastur helstu núverandi talsmanna þeirrar andstyggilegu og staursiðblindu hámenntuðu hagsmunaklíku sem er á feitu kaupi hjá ríkinu við geðhryðjuverk sem felast í að ljúga kerfisbundið rökleysum að varnarlausum börnum til að eyða dómgreind þeirra og viðhalda í vel heppnuðum vangefnum fullorðnum þessari eldfornu ranghugmynda og þversagnadrullu útúrdópaðra og froðufellandi herklerka hins týnda hlekks arabíu svo meirihluti almennings verði örugglega að rökstola og hugsjúkum fávitum sem trúa rangeygir ítrekað stórbrotnum lygasögum kjörinna kúgara sinna og koma þannig til valda þeim siðlausu skítseiðum sem oftast biðja afturgönguna almáttugu opinberlega um blessun búfé sínu til handa eða þakka fyrir ekki neitt með lygaramerki á tánum um leið og þeir heita auknum fjárhagslegum stuðningi af almannafé við vitfirrt hringhugleikahús þessara snarbrjáluðu erfingja sálfræðihernaðar fyrrum leyniþjónustu keisara rómaveldis.


Einfeldi

Ég er búinn að fatta hvernig á að redda Íslandi.  

Er búinn að stofna Einfalda Flokkinn.  

Í honum er bara einn.

Ég.

Fái Einfaldi Flokkurinn meirihluta í næstu kosningum mun hann leggja niður alþingi til að losna við karpið og breyta Íslandi úr útúrflóknu og seinvirku hagsmunakerfiskallalýðveldisdrasli  í einfalt, hraðvirkt, afkastamikið og afar arðbært vitsmunaeinfeldi.

Ríkisstjórn verður ráðin erlendis.  Nóbelsverðlaunahafar eða aðrir akademískir afreksmenn og reynsluboltar við virta erlenda háskóla, sérfræðingar í hinum ýmsu málaflokkum ríkisrekstrar verða ráðnir í viðkomandi ráðherrastóla til að fá eitthvert vit í græjuna.  

Forsætisráðherra verður viðsnúnings sérfræðingur, eldklár, hámenntaður og hálfmanískur forstjóri ginntur með ofurlaunum frá alþjóðlegu nýsköpunarrisafyrirtæki með yfir 350 þúsund starfsmenn sem hefur náð ótrúlegum árangri í að snúa sjúklegu tapi í óhemjulegan gróða á örskömmum tíma eftir að hann tók við stjórnartaumum.  Laun verða árangurstengd með bónusum og share options til að virkja í honum græðgina og stuðla að hámarksárangri.

Forsetaembættið verður lagt niður, Óli settur á verkamannaeftirlaun og síðan á Grund fyrir hrokan og Dorrit send þangað sem hún borgar skatta.  Bessastaðir verða innréttaðir fyrir útigangsmenn.

Formaður Einfalda Flokksins verður krýndur Konungur Íslands.  

Það er löngu kominn tími til að landsmenn fái alvöru íslenskan kóng eftir að hafa þurft að gera sér gormælta útlendinga að góðu um aldir. Hans hlutverk er hafa auga með ríkisstjórninni og vera almennilegur við almenning.   Konungdæmið mun þykja einstakt og laða að enn fleiri ferðamenn og þar með auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar verulega.

Embættið verður launalaust.  Beinn kostnaður Konungs af embættinu skal þó greiddur úr ríkissjóði.

Með þessu vinnst tvennt í íslenskri pólitík sem væri ígildi þess að hjálparsveitarmanni á sterum hefði tekist að bjarga lífi egypskrar múmíu.  

Í fyrsta lagi verður frændhygli útrýmt úr ríkinu því ráðherrar eru útlenskir og þekkja enga á Íslandi sem þurfa óeðlilega fyrirgreiðslu né eiga hér frændur.  Að auki hafa þeir svarið konungi hollustueiða hvers brot varðar höfuðmissi.

Í öðru lagi verður andverðleikum útrýmt úr ríkinu því ráðherrar eru andleg ofurmenni hver á sínu sviði og eftir höfðinu dansa limirnir. Það verður reyndar fyrsta verk þeirra fyrir Konung og kjósendur hans að grisja undirmálshyskið úr hinu opinbera og ráða þá hæfustu til starfa.

Þar með eru íslensk stjórnmál laus við tvíhöfða djöful þann er olli hruninu á Ísland og gerði það að verkum að enginn maður með viti vill eiginlega búa þar lengur.

Einfaldi Flokkurinn telur að með þessum aðgerðum verði hægt að redda Íslandi og allir geti haft það mjög fínt.

Það er yfirlýst stefna Einfalda Flokksins að allir skuli hafa það mjög fínt.

Það er bjargföst sannfæring Einfalda Flokksins að öðruvísi verði Íslandi ekki reddað og þá  hafa sumir það bara mjög fínt og aðrir alls ekki sem er óréttlátt, ósanngjarnt og óþolandi með öllu. 

Þegar Einfaldi Flokkurinn kemst til valda og allir eru farnir að hafa það mjög fínt er óþarfi að kjósa aftur um eitt eða neitt.  

Forðumst að flækja málin.

Einfaldið.

Kjósið X-E

Einfaldi Flokkurinn


Er Guð Kærleikur?

Eftir því sem vísindamenn komast nær þeim sannleik að Jesú Kristur er heilaspuni hugsjúkra, fyrir utan að faðir hans er fyrrum Fönikískt skurðgoð, freistast klerkar kirkju hans í auknum mæli að nota óhlutbundna eða abstrakt túlkun til að lýsa eðli hins almáttka.  

Guð er ekki lengur ægivald sem þarf að óttast og hlýða heldur er hann orðinn það góða í manninum eða alltumvefjandi kærleikur.  Hvernig kærleikurinn eða hið góða í manninum skapaði himinn og jörð eða svarar bænum er þó alveg látið liggja á milli hluta enda aukaatriði í þessari blekkingaróperu sjálfskipaðra klerka hans.  

Það vill hinsvegar svo vel til að Guð kristinna manna er víðlesinn rithöfundur og hefur skrifað tvær bækur um sjálfan sig samkvæmt kenningum þjóðkirkjunnar.  Gyðingar, sem fyrstir kynntust honum vilja þó meina að hann hafi eingöngu skrifað eina bók en Múslimar fullyrða að hann hafi skrifað þrjár.

Í fyrstu sjálfsævisögunni er að finna greinargóðar lýsingar á Guði Föður vorum og geðslagi hans sem er mun skyldara mannhatri en mannelsku og virðist sem klerkar hans íslenskir hafi ekki tekið eftir þessum eðlisþáttum þess þríeina í kærleiksvímu sinni fyrir jólin eða gleymt að lesa þetta metsölurit skapara síns að fullu en enginn er eins blindur og sá sem ekki vill sjá, hafi þeir gert það.

Sé Gamla Testamentið skoðað með opin augun kemur eftirfarandi í ljós.

Samkvæmt Jósúabók 10:11 drepur hann fleiri óvini Gyðinga en þeir sjálfir.  Hann myrti með eigin hendi 185.000 Assýringa á einni nóttu. (2. Konungabók 19:35)  Hann hvetur ennfremur áhangendur sína til manndrápa og fyrirskipar þjóðarmorð. Hann segir Jósúa að drepa allt kvikt í borginni Ai,  samtals 12.000 menn og konur (Jósúabók 8:1-29) en áður hafði hann boðið honum að gereyða Jeríkó og lét sálga þar öllu sem lífsanda dró, mönnum, konum, börnum, nautgripum, sauðfé og ösnum öllum fyrir það eitt að vera til. (Jósúabók 6:15-21)

Hann harðbannar ítrekað fylgjendum sínum að vorkenna öðrum eða sýna þeim nokkra miskun. (5. bók Móse 7:2, Esekíel 9:5-6)  Þá fremur hann og fjöldamorð á saklausum börnum sjálfur(2. bók Móse 12:29)  en börn mannana eru í verstu málum í fyrsta hluta æfisögu þessa himneska skrímslis. Þeim er harðlega refsað fyrir glæpi foreldra sinna og þeim mönnum er ekki fara að lögum hans er gert að éta eigin afkvæmi. (3. bók Móse 26:29 og 5. bók Móse 28:53)

Þegar strákahópur gerði grín að skalla Elísa spámanns formælti hann þeim í Guðs nafni en almættið sendi samstundis grimmt bjarndýr á staðinn sem reif 42 af drengjunum í tætlur fyrir sprellið.  Einnig finnst honum sjálfsagt að refsa saklausum. Samkvæmt boðorði númer tvö mun hann refsa börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum þeirra er óhlýðnast boðum hans. (2. Mósebók 20:4-5)  Og hann stendur við orð sín ítrekað.

Í Gamla Testamenti Biblíunnar drepur Guð Faðir vor og Skapari þríeinn alls 2.270.971 manneskju, sem flestar voru alsaklausar af nokkrum syndum. Andskotinn tók líf 10 manna á sama tímabili en á sér þær málsbætur að Guð skipaði honum að gera það.  Hér eru ekki taldar með gjöreyðingarherferðir hans gegn Sódómu og Gómorru né heldur mannfall Nóaflóðsins.

Hann virðist því samkvæmt eigin heilaga orði ekki hafa glóru um það sem nútímamenn kalla réttlæti og góðmennsku en ber öll merki siðblindra fjöldamorðingja og sturlaðra sadista.

Að túlka þennan brjálaða morðhund sem kærleik og kalla hið góða í manninum er eingöngu á færi þeirra sem eru með Kandídatspróf í Lygi frá Guðfræðideild Háskóla Íslands.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband